Stöðva þjónustu tímabundið eftir alvarlega tölvuárás á innviði 1984 ehf.
Hýsingarfyrirtækið 1984 ehf. hefur orðið fyrir umfangsmikilli og alvarlegri tölvuárás. Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu fyrirtækisins og netöryggissveitarinnar CERT-IS. Sú erfiða ákvörðun var tekin í framhaldinu að stöðva tímabundið alla þjónustu fyrirtækisins.